Færsluflokkur: Bloggar
22.6.2007 | 22:45
Kerlingar
Ég held ég nenni ekki að skrifa meira á þetta Mogga blogg. Óskaplega þreytt umræða og litlaus í alla staði. Allt of margar kerlingar af báðum kynjum sem ráða hér ríkjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 10:29
Frelsari fæddur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 10:13
"Sleggjan" sterk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2007 | 09:59
Sigurliðin ræði saman
Þá er það komið á hreint, "kaffibandalagið" getur ekki myndað ríkisstjórn, en það er einnig ljóst að núverandi stjórn getur tæpast setið áfram. Framsóknarflokknum hefur verið hafnað af kjósendum og það yrði ekkert annað en pólitískt sjálfsmorð fyrir flokkinn að halda samstarfinu áfram. Þá má einnig telja líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn vilji fá til liðs við sig nýja samstarfsmenn með meira fylgi á bak við sig en Framsóknarflokkurinn hefur. Er ekki lang eðlilegast í stöðunni að sigurvegarar kosninganna, VG og Sjálfstæðisflokkur ræði saman og kanni hvort grundvöllur sé fyrir samvinnu flokkanna. Einhvern veginn finnst mér óeðlilegt að tveir langstærstu flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking fari saman í stjórn. Sé Samfylkingunni alvara með því að hún vilji vera hið stóra mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn í Íslenskum stjórnmálum, þá er svarið tæplega að setjast með þeim í ríkisstjórn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2007 | 22:58
Undan okinu
Akureyringar og aðriri kjósendur í norðurlandi eystra eiga þess nú kost að varpa af sér gömlu oki Framsóknarflokksins og KEA og ganga mót nýjum tímum. Svæðið hefur lengi verið varpland og uppeldisstöð Framsóknarflokksins og aðal bakland flokksins. Hér áður var það hið besta mál, en á síðari tímum hefur flokkurinn breyst frá því að vera málsvari alls þorra landsmanna, í hagsmunasamtök fyrir fámenna klíku sem hefur allt of mikil völd miðað við kjörfylgi dagsins í dag. Það er svo sannarlega kominn tími til fyrir Eyfirðinga og landsmenn alla að varpa af sér oki Framsóknarflokksins. Það á ekki síst við um Akureyringa sem hafa allt of lengi legið undir hinni dauðu hönd flokksins og löngu orðið tímabært að rekja upp hinn þétta köngulógarvef spillingar sem flokkurinn hefur ofið yfir og allt kring íbúa á þessu svæði. Sjálfur hef ég orðið fyrir barðinu á þeim samböndum og því kerfi sem gildir á Akureyri og tengja órújfanlegum böndum veralýðshreyfingu og fyrirtæki þannig að hinn óbreytti bæjarbúi á sér litla von um réttlæti. "Mafia er það og mafia skal það heita" sagði góður maður á sínum tíma sem allir Framsóknarmenn ættu að kannast við, en hefur varla búist við að ummælin ættu eftir að eiga vel við eigin flokk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 15:44
Þungur dómur
Nú er lokið einhverju leiðinlegasta og daufasta handboltatímabili síðari ára á Akureyri. Hið nýja sameinaða lið Akureyri náði að bjarga sér frá falli eftir mikið basl og ekki er hægt að segja að tilraunin fari vel af stað. Liðið lék fyrir hálf tómu húsi í allan vetur og ekki dugði einu sinni að bjóða mönnum frítt á leiki. Það er svo sannarlega af sem áður var er KA liðið troðfyllti KA heimilið á flestum leikjum.
Ástæðan fyrir sameiningunni er sögð vera fyrst og fremst af fjárhagslegum toga og greinilegt að íþróttafélögin eru hætt að líta á sig sem íþróttafélög heldur miklu fremur sem fyrirtæki sem verði að skila hagnaði af starfsemi sinni eða a.m.k. vera rekin á sléttu. Handknattleiksdeild KA hafði safnað skuldum sem að sögn voru helmingur af skuldum félagsins. Ætli knattspyrnudeildin hljóti þá ekki að eiga hinn helminginn og geti búist við rauða spjaldinu þá og þegar. Og deildin fékk þann dóm að ganga til samstarfs við Þór á jafnréttisgrundvelli þar sem staða Þórsara væri svo miklu betri fjárhagslega. Hvernig hægt var að fá það út er mér hulin ráðgáta þar sem Íþróttafélagið Þór hefur verið nánast gjaldþrota og af ýmsum talið vera ein verst reknu félagasamtök í bænum.
En félagsmenn standa frammi fyrir orðnum hlut, samningurinn er til 5 ára og óuppsegjanlegur. Að 5 árum liðnum eru miklar líkur til þess að handboltinn á Akureyri verði nánast liðinn undir lok ef marka má reynsluna af liðnum vetri. Þá verður að telja 5 ár þungan dóm og ekki möguleiki á að sækja um náðun. Hjónabandi er hægt að rifta hvenær sem er þrátt fyrir að þar sé sjálft almættið kallað til vitnis, en samstarfi KA og Þórs í handbolta skal haldið áfram á hverju sem gengur í a.m.k. 5 ár og ef því verður slitið að þeim tíma loknum verður öllu skipt til helminga. Það virðist því borin von að KA muni nokkurn tíma aftur tefla fram handboltaliði í meistaraflokki í handbolta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 15:19
Hreinsanir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 15:06
Fórnarkosnaður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 14:54
Kastað á glæ
Nú þegar aðeins eru örfáir dagar til kosninga virðist ljóst að Íslandshreyfingin nær ekki inn manni og framboðið því dautt. Skoðanakannanir sýna svo ekki verður um villst að mjótt verður á munum milli stjórnar og stjórnarandstöðu þar sem fylkingarnar eru nánast hnífjafnar að fylgi. Þeir kjósendur sem þó ætla að láta Íslandshreyfinguna fá sitt atkvæði standa nú frammi fyrir þeirri erfiðu spurningu hvort það sé rétt að kasta þannig atkvæði sínu á glæ eða hvort vænlegra sé fyrir málstaðinn að kjósa heldur einhvern sem kemur mönnum á þing og getur þannig unnið málstaðnum gagn. Atkvæði greitt Íslandshreyfingunni jafngildir því að skila auðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2007 | 11:47
Húsdýra-rasismi
Þegar kemur að verndun landnámsmannsins sjálfs eða hans afkomenda virðist annað uppi á teningnum og þeir sem láta sér verndun hans einhverju varða eru jafnvel nefndir rasistar. Frjálslyndiflokkurinn sem hefur lýst áhyggjum sínum yfir of miklu flæði innflytjenda til Íslands hefur því fengið á sig rasistastimpilinn. Ég efast þó um að til lengdar verði hægt að sporna við nánast óheftum innflutningi fólks til landsins og þeirri blöndun sem þá muni eiga sér stað. Það er hins vegar umhugsunarefni hvort rétt sé að fara sömu leið og farin er til verndunar landnámshænunnar. Það væri hægt að taka frá grösugan dal fjarri alfarabyggð þar sem sannir afkomendur landnámsmanna muni búa í vernduðu umhverfi. Þekkt eru t.d. verndarsvæði indíána svo ekki sé nú minnst á Amis-fólkið í Bandaríkjunum.
En án gríns, ef flestum Íslendingum þykir sjálfsagt að halda stofnum húsdýra hreinum, er þá nokkuð undarlegt þó menn vilji staldra við og íhuga framtíð mannsins sjálfs í þessu landi. Hætt er við að verkefni ættfræðinga verði sífellt erfiðari með hverju árinu ef rekja þarf þræðina til Thaílands svo dæmi sé tekið. Já....það styttist kannske í að hægt verði að loka Íslendingabók endanlega fyrr en varir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)